Com(m) on-line
Samstarfsaðilar | Katholiek Onderwijs Vlaanderen, Belgíu Centrum voor volwassenenonderwijs Kisp, Belgíu (verkefnisstjóri) Escuela Oficial de Idiomas de Santa Cruz de Tenerife, Spáni Zetva na znaenje, Makedóníu Scottish Wider Access Programme West SCIO, Skotlandi Fræðslumiðstöð atvinnulífs, Íslandi |
Verktími | 2020-2022 |
Verknúmer | Erasmusplussamningur nr. / Agreement nr. 2020-1-BE02-KA204-074661 |
Starfsmennt er þátttakandi í evrópska samstarfsverkefninu Com(m)-online: Creating, guiding and coaching professional learning communities in an online learning environment. Verkefnið hefur það markmið að styðja við stafræna færni og kennslufræðilega þekkingu þeirra sem vinna í fullorðinsfræðslu.
Fjarkennsla, vefkennsla og vendikennsla kalla á breytta aðferðafræði sem er nauðsynlegt að þekkja og eins og kórónaveiran hefur kennt okkur er nauðsynlegt fyrir kennara og leiðbeinendur í fullorðinsfræðsu að vera vel tæknifærir og skilja hvaða kennslufræði og aðferðafræði miðlunar hentar efni og aðstæðum hverju sinni.
Verkefnið er styrkt af Erasmusplus, menntaáætlun Evrópusambandsins.
Transforming VET to 4.0
Samstarfsaðilar | Savon koulutuskuntayhtymä, Finnlandi ROC de Leijgraaf, Hollandi Staatsinstitut für Schulqualität und Bildungsforschung, Þýskalandi (verkefnisstjóri) Industrie- und Handelskammer für München und Oberbayern, Þýskalandi Berufskolleg Werther Brücke, frá Wuppertal, Þýskalandi |
Verktími | 2019-2021 |
Verknúmer | Erasmusplussamningur nr. / Agreement nr. 2018-1-DE02-KA202-005158 |
Starfsmennt er þátttakandi í evrópska samstarfsverkefninu Transforming VET to 4.0 skammstafað T- VET 4.0. Verkefnið er styrkt af Erasmusplus, menntaáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið lýtur að þeim áskorunum sem starfsmenntun og kennarar innan starfsmenntunar og fullorðinsfræðslu standa frammi fyrir í tengslum við hæfnikröfur 4.iðnbyltingarinnar.
Samstarfsaðilar munu deila reynslu sinni og þekkingu og skoða sérstaklega þróun í kennsluaðferðum og verkfærum sem nýta má í kennslu og námi bæði innan formlegs náms, óformlegs náms og vinnustaðanáms.
Fylgist með á heimasíðu verkefnisins www.tvet40.eu og á Twitter undir myllumerkinu #TVE
Þróun mannauðs hjá Starfsmennt
Samstarfsaðilar | Erasmusplus - landskrifstofa menntaáætlunar ESB |
Verktími | 2019-2021 |
Verknúmer | Erasmusplussamningur nr. / Agreement nr. 2019-1-IS01-KA104-051093 |
Starfsmennt hlaut styrk frá Erasmusplus, menntaáætlun Evrópusambandsins úr flokknum KA1 sem stendur fyrir fullorðinsfræðslu. Í starfsþróunaráætlun Starfsmenntar er lögð áhersla á að starfsmenn kynni sér enn frekar stafræna miðlun og ráðgjöf. Styrkurinn gerir starfsmönnum Starfsmenntar kleift að sækja sér starfs- og endurmenntun á þessu sviði og ekki síst efla samstarfsnet sitt erlendis.
Sólborg Alda Pétursdóttir verkefnastjóri og náms- og starfsráðgjafi hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt sótti fyrsta námskeiðið sem fjallaði um rafræna ráðgjöf hjá Háskólanum í Jyväskylä í Finnlandi.
You Dig IT
Samstarfsaðilar | Internetcafe ZwischenSchritt ASB Wien Wohnen- und Soziale Dienst gGmbH frá Austurríki Novi Iskar Generation Y frá Búlgaríu Friesland College / FC Sprint2 frá Hollandi (verkefnisstjóri) Oefenen frá Hollandi AIM Agency for Interculture and Mobility frá Ítalíu Institut für technologieorientierte Frauenbildung e.V. frá Þýskalandi |
Verktími | 2017-2019 |
Verknúmer | Erasmusplussamningur nr./Agreement nr. 2017-1-NL01-KA204-035230 |
Starfsmennt tók þátttakandi í evrópska samstarfsverkefninu You Dig IT, How to deal with digital tools in 21st century education for low skilled adults. Verkefnið er styrkt af Erasmusplus, menntaáætlun Evrópusambandsins og gengur út á að skoða minnst 10 rafræn verkfæri (smáforrit/öpp) sem nýst geta í námi og kennslu og þjálfa leiðbeinendur í notkun þeirra.
Á vef verkefnisins má finna upplýsingar um forritin sem voru prófuð.