Af hverju þurfa sum að borga en önnur ekki?
Starfsfólk ríkisstofnana
Ef þú starfar hjá ríkisstofnun og ert í einhverju af þessum stéttarfélögum þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli kjarasamninga.
- Félag flugmálastarfsmanna ríkisins
- Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
- FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
- Félag starfsmanna stjórnarráðsins
- Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
- Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu
- Starfsmannafélag Garðabæjar
- Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
- Starfsmannafélag Húsavíkur
- Starfsmannafélag Kópavogs
- Starfsmannafélag Suðurnesja
- Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Ef þú starfar hjá ríkisstofnun og átt rétt hjá Ríkismennt eða Starfsþróunarsetri háskólamanna þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli samstarfssamninga.
Ef þú ert í fæðingarorlofi eða færð greiddar atvinnuleysisbætur en varst seinast í starfi hjá ríkinu og greiddir félagsgjöld til Sameykis þá geturðu nýtt þér þjónustu Starfsmenntar þér að kostnaðarlausu.
Starfsfólk sjálfseignarstofnana
Ef þú starfar hjá sjálfseignarstofnun sem hefur samið við Sameyki um að greiða til Starfsmenntar þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli kjarasamnings.
Ef þú starfar hjá sjálfseignarstofnun og átt rétt hjá Starfsþróunarsetri háskólamanna þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli samstarfssamnings.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar
Starfsfólk sveitarfélaga
Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna
Samið hefur verið um fullan aðgang að námi og fræðslu á vettvangi Starfsmenntar fyrir starfsfólk ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana, sem jafnframt á rétt hjá Starfsþróunarsetri háskólamanna. Greiðslurnar skerða ekki einstaklingsrétt félagsfólks.
Við skráningu þurfa þau sem falla hér undir að fylgja þessum skrefum:
- Velja undir Stéttarfélag: Ekkert af neðangreindu/Annað - Vinsamlegast tilgreindu hér fyrir neðan.
- Í reitinn Stéttarfélag - annað á að skrá það aðildarfélag BHM sem viðkomandi tilheyrir. ATH! Ekki nægir að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins (sjá listann hér fyrir neðan).
- Undir greiðsluupplýsingar á að haka í Ég vil fá sendan greiðsluseðil og setja kennitölu Starfsþróunarseturs sem greiðanda, kennitalan er 5006110730.
Aðildarfélögin eru:
- Dýralæknafélag Íslands
- Félag geislafræðinga
- Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
- Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum
- Félag íslenskra náttúrufræðinga
- Félag leikstjóra á Íslandi
- Félag lífeindafræðinga
- Félag sjúkraþjálfara
- Félagsráðgjafafélag Íslands
- Iðjuþjálfafélag Íslands
- Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga
- Ljósmæðrafélag Íslands
- Prestafélag Íslands
- Sálfræðingafélag Íslands
- Stéttarfélag lögfræðinga
- Viska (áður Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Félag íslenskra félagsvísindamanna)
- Þroskaþjálfafélag Íslands