Tækifæri til að efla þína hæfni!

Hjá Starfsmennt finnurðu fjölbreytt úrval námskeiða sem miða að því að auka starfshæfni sem þarf í opinberum störfum. 

Starfshæfni er bæði almenn og sértæk. Þess vegna finnurðu námskeið til að efla sjálfstraust, auka færni í notkun upplýsingatækni og að efla seiglu í að takast á við breytingar. Allt þetta nýtist þvert á störf.

Námskeið um sértækari málefni eru venjulega ætluð starfsfólki í ákveðnum starfsgreinum eða hjá tilteknum stofnunum.

Námskeið og fræðsla er án endurgjalds fyrir félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar og samstarfssjóða en öðrum er bent á að skoða endurgreiðslumöguleika frá sínum fræðslu- og starfsmenntasjóðum.

Athugið að það þarf að skrá sig tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst, nema annað sé tekið fram.

Kíktu á námskeiðin sem eru framundan