1. grein - Heiti og aðild
Fræðslusetrið heitir Starfsmennt. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Starfsmennt er sett á stofn og starfar á grundvelli kjarasamninga aðila; fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og eftirtalinna stéttarfélaga hins vegar;
• Félags flugmálastarfsmanna ríkisins
• Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi
• Félags starfsmanna stjórnarráðsins
• FOSS stéttarfélags í almannaþjónustu
• Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu
• Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu
• Starfsmannafélags Húsavíkur
• Starfsmannafélags Kópavogs
• Starfsmannafélags Suðurnesja
• Starfsmannafélags Vestmannaeyja
Starfsmennt starfar með því skipulagi og skv. þeim markmiðum sem segir í samþykktum þessum. Stjórn Starfsmenntar skal setja sér nánari starfsreglur í samræmi við markmið þess.
Önnur stéttarfélög opinbers starfsfólks og opinberir launagreiðendur geta gerst aðilar að Starfsmennt með samþykki stjórnar. Sama gildir um launagreiðendur sem gera kjarasamning við eitthvert af ofangreindum stéttarfélögum og sinna almannaþjónustu.
2. grein - Markmið og hlutverk
Markmið Starfsmenntar er að efla símenntun þess starfsfólks sem heyrir undir aðila sbr. 1. gr. Þannig stuðlar Starfsmennt að markvissri starfsþróun með það fyrir augum að starfsfólk verði færara til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni ásamt því að vinnustaðir auki möguleika sína á að þróa starfsemina þannig að hún samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma.
Hlutverk Starfsmenntar er að ná ofangreindu markmiði með því að gera tillögur um fræðslu, vera umsjónaraðili og/eða framkvæmdaaðili, taka á móti hugmyndum og vera stefnumótandi. Starfsmennt leggur í þessu efni áherslu á að veita vinnustöðum aðstoð, þjónustu og ráðgjöf. Í því felst meðal annars að greina og meta þörf fyrir fræðslu og þjálfun og gera áætlanir á því sviði. Starfsmennt tekur jafnframt þátt í kostnaði við símenntun starfsfólks í samræmi við reglur um aðild og samninga við sjóði.
3. grein - Samstarf við aðra aðila
4. grein - Fjármál og tekjur
Tekjur Starfsmenntar eru:
• Mánaðarlegt iðgjald launagreiðanda skv. ákvæðum í kjarasamningum aðila á hverjum tíma.
• Framlög þróunar- og símenntunarsjóða og sambærilegra sjóða samningsaðila samkvæmt samkomulagi við sjóðina.
• Vaxtatekjur.
• Sjálfsaflafé.
Starfsmennt er heimilt að afla tekna með sölu námsefnis, námskeiða eða þjónustu samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Fjármuni Starfsmenntar skal ávaxta á þann hátt sem stjórn þess telur hagkvæmastan á hverjum tíma.
Starfsmennt getur tekið að sér rekstur og umsýslu þróunar- og símenntunarsjóða félaganna og sambærilegra sjóða samkvæmt samkomulagi við stjórnir sjóðanna.
Reikningsár Starfsmenntar er almanaksárið. Uppsetning ársreiknings og endurskoðun skal gerð af löggiltum endurskoðanda.
Ársreikning skal senda til samningsaðila.
5. grein - Skipan, hlutverk og starfshættir stjórnar
Stjórn Fræðslusetursins skal skipuð fjórum fulltrúum, tveimur sem fjármála- og efnahagsráðherra tilnefnir og tveimur sem stéttarfélögin tilnefna. Varamenn eru jafnmargir og skipaðir með sama hætti.
Stjórn heldur ársfund/aðalfund fyrir lok júnímánaðar ár hvert og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara. Stjórn skiptir með sér verkum í samræmi við starfsreglur.
Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum Starfsmenntar. Stjórnin skal funda reglulega, halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði. Stjórnin skal árlega gera skýrslu um störf sín og senda samningsaðilum.
6. grein - Framkvæmdastjóri
7. grein - Breytingar
Samþykkt með rafrænni undirskrift í október 2025
F.h. fjármála og efnahagsráðherra
Jökull H. Úlfsson
Ásta Einarsdóttir
Einar Mar Þórðarson
F.h. Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, Unnar Örn Ólafsson
F.h. Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi, Guðjón Hilmarsson
F.h. Félags starfsmanna stjórnarráðsins, Guðbrandur Jónsson
F.h. FOSS stéttarfélags í almannaþjónustu, Árný Erla Bjarnadóttir
F.h. Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu, Arna Jakobína Björnsdóttir
F.h. Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu, Kári Sigurðsson
F.h. Starfsmannafélags Húsavíkur, Hermína Hreiðarsdóttir
F.h. Starfsmannafélags Kópavogs, Marta Ólöf Jónsdóttir
F.h. Starfsmannafélags Suðurnesja, Trausti Björgvinsson
F.h. Starfsmannafélags Vestmannaeyja, Unnur Sigmarsdóttir