Fræðslusetrið Starfsmennt

Starfsmennt er fræðslusetur fyrir opinbert starfsfólk og opinberar stofnanir.

Starfsmennt var stofnað árið 2001 í kjölfar kjarasamninga og er í eigu fjármála- og efnahagsráðuneytis og flestra stéttarfélaga innan BSRB.

Þjónustan styður við færniþróun opinbers starfsfólks svo það geti betur tekist á við fjölbreytt verkefni og breytingar í starfsumhverfi sínu. Markviss færniþróun starfsfólks eykur möguleika stofnana til að þróast og ná að samræmast kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma fyrir sig.

Hlutverk og markmið

Meginhlutverkin eru:

  • Að bjóða opinberum starfsmönnum víðtæka möguleika til menntunar og þroska.
  • Að aðstoða stjórnendur við mótun vinnustaðamenningar og starfsumhverfis sem miðar að því að auka ánægju og hvatningu í starfi.

Markmið Starfsmenntar er að vera vettvangur fyrir samstarf um starfstengt nám, starfsþróun og ráðgjöf á sviði mannauðseflingar til að styðja við hágæða opinbera þjónustu.

Starfsmennt vill vera leiðandi starfsmenntar- og ráðgjafamiðstöð og eftirsóknarverður samstarfsaðili í viðleitni opinberra stofnana til að efla fagmennsku og færni í starfi og í að skapa uppbyggilegt og hvetjandi vinnuumhverfi

Fyrir greiðslur

Greiðslur til Starfsmenntar berist á bankareikning 0303-13-300674, kennitalan er 441001-2070
Vinsamlegast sendið kvittun fyrir millifærslu með skýringu á smennt@smennt.is.