Taktu skrefið og komdu í spjall!

Náms- og starfsráðgjafi Starfsmenntar veitir þér persónulega og faglega ráðgjöf um tækifæri og möguleika í námi og starfi.

Hjá ráðgjafa geturðu fengið aðstoð við að:

  • Kanna hvar áhugasvið þitt liggur
  • Finna leiðir og setja þér markmið
  • Gera ferilskrá og kynningarbréf ef þú ert í atvinnuleit
  • Skilja betur hvað felst í raunfærnimati og hvort það er eitthvað fyrir þig

Samtal við náms- og starfsráðgjafa er alltaf sniðið að þínum þörfum og Ingibjörg Hanna tekur vel á móti þér í húsnæði Starfsmenntar í spjalli á Teams eða í síma.

Þjónustan er opin öllu félagsfólki í aðildarfélögum BSRB og Starfsþróunarseturs háskólamanna. 

Bóka spjall við ráðgjafa