Í byrjun nóvember fóru stjórn og starfsfólk Starfsmenntar í námsferð til Dublin á Írlandi. Tilgangurinn var að heimsækja Institute of Public Administration (IPA) og heyra hvernig Írar hafa í 70 ár unnið að því að sinna fræðslu fyrir opinbera geirann á markvissan og stefnumiðaðan máta.
IPA sinnir ýmis konar fræðslu fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga og býður bæði upp á einingabært nám í samvinnu við háskóla en einnig styttri og hagnýtari námskeið sem nýtast fólki í starfi. Starfsmennt fékk kynningu á því hvernig stefnumál stjórnvalda eru nýtt til að þróa nám í samstarfi við helstu hagsmunaaðila og hvernig framkvæmdin er m.a. hvað varðar aðgengi að námi og kostnað við að sækja námið. Rætt var vítt og breitt um eftirfarandi:
- Stefnumótun um betri opinbera þjónustu og hvernig árangur fræðslu er mældur.
- Hæfniramma fyrir opinbert starfsfólk og hvernig slíkir rammar nýtast til að greina fræðsluþarfir.
- Hönnun fræðslu og lengri námslína og samstarf við mannauðsfólk stofnana í þeirri þróunarvinnu.
Þá höfðu þau hjá IPA einnig skipulagt heimsókn fyrir Starfsmennt í ráðuneyti fjármála og nýsköpunar og eins fengum við að líta inn í írska þingið, fá leiðsögn um söguna og sjá þingmenn að störfum.
Námsferðin nýtist Starfsmennt mjög vel til að endurhugsa hluti, fá breiðari sýn á samstarf og þróun og horfast í augu við áskoranir og stefnu. Lærdómurinn hefur nú þegar nýst stjórn við að ákveða áherslur í starfinu fyrir árið 2027 og hann mun nýtast áfram í starfinu núna þegar Starfsmennt hefur sitt 26. starfsár.
Mynd af hópnum ásamt fulltrúm frá IPA, nöfn frá vinstri: Ingibjörg Hanna Björnsdóttir, Ásta Einarsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Colette Darcy, Guðrún Arna Gylfadóttir, Stephen Weir, Sólborg Alda Pétursdóttir, Helen Brophy, Soffía Guðný Santacroce, Naomi Blumlein, Björg Valsdóttir, Denis O‘Brian, Arna Jakobína Björnsdóttir, Einar Mar Þórðarson, Guðfinna Harðardóttir, Jóhanna Þórdórsdóttir.