Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.

Sumarlokun skrifstofu Starfsmenntar

07. júlí 2026

Skrifstofa Starfsmenntar er lokuð frá 13. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Við opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.

Á haustönn bjóðum við uppá fjölbreytt úrval fræðslu og ráðgjafar sem stuðla að aukinni hæfni. Við bætum reglulega á fræðsluhlaðborðið svo fylgstu vel með til að missa ekki af þínu tækifæri til vaxtar.

  • Skráning á öll námskeið haustannar hefst 4. ágúst.  
  • Merktu það í dagatalið og búðu þig undir að læra eitthvað nýtt og spennandi!

Gleðilegt sumar 🌞