Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Þjónandi leiðsögn – Grunnnámskeið - Hópur 1

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvernig getum við byggt upp traust, öryggi og jákvæð tengsl í daglegu starfi?

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem leggur áherslu á mannleg tengsl, umhyggju og virðingu í allri þjónustu.

Á þessu grunnnámskeiði kynnumst við helstu stoðum þjónandi leiðsagnar og hvernig þær geta stutt við jákvæð samskipti, aukin lífsgæði og einstaklingsmiðaða þjónustu. Farið verður yfir hvernig hugmyndafræðin nýtist í daglegu starfi með fólki og hvernig hún tengist mannréttindum, sjálfsákvörðunarrétti og þátttöku í samfélaginu.

Efnistök
  • Grunnstoðir þjónandi leiðsagnar
  • Tengsl, virðing og öryggi
  • Hlutverk starfsfólks tengt þjónandi leiðsögn
  • Þjónandi leiðsögn í daglegu lífi og starfi
Hæfniviðmið

Að þekkja helstu grunnstoðir þjónandi leiðsagnar.
Að geta nýtt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar í daglegum samskiptum.
Að átta sig á mikilvægi tengsla, virðingar og öryggis í þjónustu við fólk.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrur og umræður.

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Umsjón
Björn Ingi Árnason, leiðbeinandi í Þjónandi leiðsögn
Námsform
Staðnám
Tími
  • 14. september 2026 klukkan 13:00-16:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á mannlegri og virðingarfyllri nálgun í starfi.