Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Varnarviðbrögð

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvernig bregðumst við á öruggan og faglegan hátt þegar erfiðar aðstæður skapast í starfi?

Í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður sem reyna á viðbragð, yfirvegun og öryggi. Þetta námskeið fjallar um hvernig greina má snemmbúin merki um spennu eða vanlíðan sem geta þróast í átök og hvernig hægt er að bregðast við á rólegan og öruggan hátt áður en aðstæður magnast.

Áhersla er lögð á virðingu, öryggi og mannlega nálgun. Þátttakendur læra hvernig hægt er að draga úr spennu, styðja einstakling til jafnvægis og nota einföld varnarviðbrögð ef til árásar kemur, án þess að valda skaða. Námskeiðið byggir á hagnýtum dæmum og æfingum sem tengjast raunverulegum aðstæðum í starfi.

Efnistök
  • Einkenni hegðunar sem geta leitt til átaka eða árásar
  • Fyrirbyggjandi samskipti og róandi nálgun
  • Örugg viðbrögð þegar spenna eykst
  • Varnarviðbrögð sem miða að öryggi allra
  • Hvernig styðja má einstakling úr árásarham í jafnvægi
  • Verklegar æfingar og umræður um raunverulegar aðstæður
Hæfniviðmið

Að öðlast öryggi og færni til að bregðast við krefjandi aðstæðum á faglegan og öruggan hátt.
Að efla hæfni til að verja sig án þess að valda skaða og stuðla að ró og öryggi í umhverfinu.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verklegar æfingar.

Umsjón
Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur
Námsform
Staðnám
Tími
  • 29. september 2026 klukkan 13:00-16:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja styrkja eða rifja upp viðbragðs- og öryggisfærni.