Á námskeiðinu verður fjallað um vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk og notendur þjónustu. Áhersla verður lögð á hvaða upplýsingar má og þarf að skrá, hvernig standa ber að skráningu og hvernig gæta á aðgangs, miðlunar og öryggis upplýsinganna.
Einnig verður farið yfir hvernig bregðast á við þegar einstaklingur óskar eftir aðgangi að upplýsingum um sig, meðal annars hvaða upplýsingar ber að afhenda og hvernig gæta á réttinda annarra við afgreiðslu slíkrar beiðni.
Leitast verður við að tengja umfjöllunina við aðstæður sem geta komið upp í daglegum störfum stjórnenda.
Að þekkja helstu reglur um vinnslu persónuupplýsinga.
Að vita hvað er málefnalegt og nauðsynlegt að skrá.
Að þekkja reglur um aðgang, miðlun og öryggi upplýsinga.
Að átta sig á ábyrgð stjórnenda við vinnslu persónuupplýsinga.
Fyrirlestur og umræður.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Inga Amal Hasan lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3 klst
Mæting og þátttaka
Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja styrkja eða rifja upp viðbragðs- og öryggisfærni.