Aftur í námskeið

Copilot í daglegu starfi-Fullbókað

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Notar þú Microsoft 365 og hefur Copilot premium leyfi?

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á hagnýta notkun Copilot í daglegu starfi ásamt verklegri færni og lausnum.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta er lagður grunnur að því hvað Copilot er, hvernig Copilot virkar og hvernig á að byrja að nota Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum. Í seinni hlutanum er farið dýpra og ítarlegar í aðferðir, gagnlegar brellur og beinar æfingar sem hjálpa þér að ná því besta út úr Copilot.

Áhersla er lögð á verklega þjálfun og þátttakendur vinna með sína eigin tölvu í gegnum námskeiðið.

Efnistök
  • Copilot sem daglegur vinnufélagi og ráðgjafi
  • Hvernig nota á Copilot í Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel
  • Kvaðningar (promts), hvernig spara á tíma og nýta gæðin
  • Hvernig hægt er að nýta fulltrúa (agents) í verkefnum
  • Hvernig hægt er að nota glósubækur (notebooks) við vinnu í Copilot
  • Önnur verkfæri eins og Loop, Pages og OneNote
Hæfniviðmið

Að geta tengt Copilot við Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel til að létta daglega vinnu.
Að geta skrifað skýrar kvaðningar (e. prompts) sem spara tíma og tryggja gæði.
Að geta nýtt gervigreindarfulltrúa (e. agents) og glósubækur (e. notebooks) í flóknari verkefnum.
Að geta beitt Copilot í samvinnutækjum á borð við Loop, Pages og OneNote.
Að geta notað hagnýt brögð og brellur til að auka skilvirkni í starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verklegar æfingar.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili

Endurmenntun Háskóla Íslands

Umsjón

Ingvar Ágústsson ráðgjafi og kennari

Námsform

Staðnám

Tími
  • 9. október 2026 klukkan 08:30-14:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

5,5 klst

Mat

Mæting og virkni í tímum

Staðsetning

Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Námskeiðið er fyrir öll sem nota Microsoft 365 og hafa Copilot með premium leyfi