Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra.
Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.
Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum.
Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum.
Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið. Netnámskeiðið er 3.5 klst.
ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda.
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum.
Ökuland
Ökuland
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3,5 klst
Að ljúka námskeiði
Ökuland Austurvegi 6, 800 Selfossi
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar