ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Lögð er áhersla á að bílstjóri skilji að þekking og færni er undirstaða fagmennsku. Bílstjórinn þekki þætti í daglegu lífi og starfsumhverfi sem hafa áhrif á öryggi hans, heilsufar, andlega og líkamlega líðan.
Hann þekki einkenni þreytu og streitu og viðbrögð þar við. Hann skilji ferli skynjunar, hegðun manna í umferðinni og mikilvægi sálrænna þátta í umferðar- og vinnuslysum.
Fagmennska og færni
Heilsa og vellíðan
Þreyta og streita
Sálfræði í umferðinni
Að þekkja meginreglur vinnuvistfræðinnar og hvernig draga má úr andlegum og líkamlegum afleiðingum vinnuálags
Að skilja samhengi milli umhverfis, ökutækis og mannlegra þátta með tilliti til umferðaröryggis
Að skilja eðli skynjunar og mannleg viðbrögð við ýmsum aðstæðum
Að gera sér grein fyrir þýðingu þess að veita góða þjónustu, hvort sem verið er að flytja vörur eða farþega
Að þekkja og tileinka sér þá þætti sem gera bílstjóra að fagmanni
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.