Aftur í námskeið

Hagnýt ráð til að vinna gegn streitu og auka jafnvægi í lífi og starfi

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Á námskeiðinu er fjallað um streitu og bjargráð og mikilvægi þess að trúnaðarmenn þekki álag og áreiti sem fylgir hlutverki þeirra og geti brugðist við því á uppbyggilegan hátt. Unnið er með sjálfsþekkingu, það að greina eigin viðbrögð við streitu og styrkja getu til að takast á við krefjandi samskipti og aðstæður í starfi. Fjallað er um leiðir til að forgangsraða verkefnum, viðhalda jafnvægi og nýta álag sem tækifæri til vaxtar án þess að það verði langvinnt. Þátttakendur kynnast hagnýtum bjargráðum, jákvæðu hugarfari og einföldum slökunaraðferðum sem styðja þá í daglegu starfi sem trúnaðarmenn.

Efnistök
  • Daglegt áreiti, áhrif þess á lífsgæði
  • Sjálfsþekking, skilningur á eigin streituviðbrögðum
  • Álagsstjórnun, persónulegur vöxtur án langvinnrar streitu
  • Forgangsröðun, aðferðir til að halda jafnvægi
  • Verkfæri, jákvætt hugarfar, bjargráð og slökun
Hæfniviðmið

Að öðlast aukna sjálfsþekkingu og geti greint helstu álagsvalda í eigin starfi og lífi.
Að fá verkfæri til að bregðast við streitu og viðhalda jafnvægi í daglegum verkefnum.
Að tileinka sér bjargráð, jákvæð viðhorf og einfaldar aðferðir til að draga úr álagi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Streymt á Zoom.

Samstarfsaðili
Sameyki
Umsjón
Sigríður Hulda Jónsdóttir hjá SHJ ráðgjöf
Námsform
Streymi
Tími
  • 29. október 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat

Mæting

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis