Ath. Einnig hægt að skrá sig á vefnámskeið HÉR.
Farið er yfir aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaðna. Kynntar verða lauslega niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu.
Fjallað verður um enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.
Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum 1 en er þó ekki skilyrði.
Að þekkja helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.
Fyrirlestur og verkefnavinna.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.
Iðan fræðslusetur
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingur
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
6 klst
Mæting og þátttaka
Iðan fræðslusetur Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Byggingarmenn, einnig umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga