Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 09:00
Breytingar eru orðnar fastur þáttur í starfsumhverfi flestra. Ný tækni, þróun vinnumarkaðarins, breyttar kröfur og breytingar innan vinnustaða kalla stöðugt á aðlögun og nýjar leiðir til að vinna saman. Þó að breytingar geti skapað ný tækifæri og eflt okkur þá geta þær einnig skapað óvissu og álag.
Í þessu gagnvirka erindi verður fjallað um hvernig við upplifum breytingar og hvers vegna þær geta haft ólík áhrif á fólk. Áhersla verður lögð á samtal, þátttöku og miðlun reynslu. Þátttakendur fá tækifæri til að skoða eigin reynslu af breytingum, ræða hvað hefur reynst þeim vel og greina leiðir til að efla vellíðan, sveigjanleika og starfsánægju í síbreytilegu umhverfi.
Að skilja betur hvað hefur áhrif á vellíðan í síbreytilegu starfsumhverfi.
Að átta sig á eigin styrkleikum og því sem styður við góða aðlögun.
Að kynnast einföldum leiðum til að efla starfsorku og andlega heilsu.
Að taka með sér nokkrar hagnýtar aðferðir sem nýtast í daglegu starfi.
Fyrirlestrar og umræður.
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða