Aftur í námskeið

Sérstakir launaútreikningar kennara og annars starfsfólks í grunn- og tónlistarskólum

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 09:00

Lýsing

Farið er yfir grunnforsendur varðandi launaútreikninga kennara í grunn- og tónlistarskólum sem og annars starfsfólks sem vinnur af sér daga meðan á starfstíma skóla stendur. Auk þess verður komið inn á helstu atriði í framkvæmd vinnutíma, samkomulags og útreikninga vegna fæðingarorlofs kennara og tiltekin sérréttindi sem gilda í kjarasamningum kennara. Þá verður farið yfir gögn sem þarf að afla þegar gengið er frá ráðningu svo sem leyfisbréf og upplýsingar úr sakaskrá.

Efnistök
  • Grunnforsendur launaútreikninga
  • Vinnutími og orlof
  • Kjarasamningsbundin réttindi
  • Ráðningarferlið og fylgigögn við ráðningu
Hæfniviðmið

Að kunna skil á grunnatriðum varðandi launaútreikninga starfsfólks stofnana þar sem starfsemin liggur niðri hluta úr ári.
Að vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir við ráðningu starfsfólks í grunn- og tónlistarskólum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Gott að vita

Þátttakendur fá neysluhlé á milli kl. 12:00 og 13:00.

Umsjón
Bjarni Ómar Haraldsson sérfræðingur á kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga
Námsform
Streymi
Tími
  • 22. september 2026 klukkan 09:00-14:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
5 klst
Mat
Mæting
Verð
30.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Launafulltrúar og þau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá sveitarfélögum