Aftur í námskeið

SSH | Mentor I - Þjónandi leiðsögn í lífi einstaklinga með fötlun

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvernig getum við verið leiðandi afl í að efla menningu umhyggju, virðingu og góð samskipti á vinnustaðnum?

Mentor er framhaldsnámskeið fyrir starfsfólk sem vill dýpka þekkingu sína á þjónandi leiðsögn og taka virkan þátt í að styðja við innleiðingu hennar á sinni starfsstöð.

Á námskeiðinu er farið nánar í hugmyndafræðina, hvernig hún birtist í daglegu starfi og hvaða hlutverki mentor leiðbeinendur gegna. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfsskoðun, samskipti og hvernig við getum haft jákvæð áhrif á starfsumhverfi, samstarf og lífsgæði þeirra sem við styðjum.

Efnistök
  • Hugmyndafræði og þróun þjónandi leiðsagnar
  • Þjónandi leiðsögn í daglegu lífi og starfi
  • Hlutverk mentor leiðbeinanda
  • Sjálfsskoðun og fagleg þróun
Hæfniviðmið

Að geta leiðbeint öðru starfsfólki í þjónandi leiðsögn á sinni starfsstöð.
Að geta nýtt þjónandi leiðsögn markvisst í eigin starfi og samskiptum.
Að geta stutt samstarfsfólk í að efla þjónandi leiðsögn á vinnustaðnum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni.

Gott að vita

Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi klárað grunnnámskeiðinu Þjónandi leiðsögn í lífi einstaklinga með fötlun til þess að geta skráð sig hér.

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes
Umsjón
Guðrún Halldórsdóttir, leiðbeinandi í þjónandi leiðsögn og forstöðumaður á Skammtímadvölinni Svöluhrauni
Námsform
Staðnám
Tími
  • 15. október 2026 klukkan 09:00-16:00
  • 20. október 2026 klukkan 09:00-16:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
14 klst (7x2)
Mat
Mæting, þátttaka
Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.