Hvernig bregðumst við rétt við þegar slys eða bráð veikindi verða á vinnustað?
Það getur skipt sköpum að bregðast rétt við og með hraði þegar slys eða bráð veikindi koma upp.
Námskeiðið hefst á upprifjun úr Skyndihjálp I og II. Fjallað er um rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun, eitranir og bráða sjúkdóma.
Einnig er farið yfir sálræna skyndihjálp og hvernig hægt er að veita stuðning þegar erfiðir atburðir eiga sér stað. Sérstök áhersla er lögð á aðstæður sem geta komið upp í starfi með fötluðu fólki.
Skyndihjálp I, II og III mynda saman heildstætt grunnnámskeið í skyndihjálp.
Að geta beitt grunnfærni í skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes
Laufey Elísabet Gissurardóttir leiðbeinandi í skyndihjálp og formaður Þroskaþjálfafélag Íslands
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3 klst
Mæting
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn