Aftur í námskeið

SSH | Umönnun fatlaðra

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Góð umönnun snýst um meira en að sinna verkefnum. Hún byggir á þekkingu, virðingu og skilningi á þörfum hvers einstaklings. Starfsfólk þarf að geta brugðist við ólíkum aðstæðum af öryggi og geta beitt vönduðum vinnubrögðum sem stuðla að vellíðan, sjálfstæði og öryggi þeirra sem njóta þjónustunnar.

Á þessu námskeiði er farið yfir helstu atriði sem tengjast daglegri umönnun fólks með fötlun. Fjallað er um sýkingavarnir, líkamsbeitingu, notkun hjálpartækja og aðhlynningu við athafnir daglegs lífs. Einnig er farið yfir umönnun einstaklinga með flóknar stuðningsþarfir, meðal annars í tengslum við húðumhirðu, þvagleka, næringu, PEG-sondu og öndunarstuðning.

Áhersla er lögð á hagnýta þekkingu sem styður starfsfólk í daglegu starfi og eykur öryggi þess við að veita góða og faglega þjónustu.

Efnistök
  • Heildræn umönnun og athafnir daglegs lífs
  • Sýkingavarnir og hreinleg vinnubrögð
  • Líkamsbeiting og öruggar færslur
  • Hjálpartæki og stuðningur við hreyfingu
  • Næring, PEG-sonda og öndunarstuðningur
  • Þvagleki, húðumhirða og fyrirbyggjandi umönnun
  • Að greina líðan og bregðast við breytingum
  • Umönnun fólks með miklar og flóknar stuðningsþarfir
Hæfniviðmið

Að öðlast aukna þekkingu og öryggi í daglegri umönnun fólks með fötlun.
Að geta beitt vönduðum vinnubrögðum sem stuðla að öryggi, heilbrigði, sjálfstæði og vellíðan þeirra sem njóta þjónustunnar.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes
Umsjón
Þórunn Róbertsdóttir þroskaþjálfi
Námsform
Staðnám
Tími
  • 24. september 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.