Aftur í námskeið

Stjórnsýsla og lagaumhverfi hins opinbera

Lýsing

Fjallað verður um ákvæði stjórnsýslulaga, kröfur um háttsemi starfsfólks og leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Þá er einnig fjallað um skráningu mála og upplýsinga og aðgang að gögnum samkvæmt stjórnsýslu- og upplýsingalögum.

Efnistök
  • Stjórnsýsla og lagaumhverfi hins opinbera
  • Málsmeðferð
  • Hæfisreglur stjórnsýslulaga
  • Tjáningarfrelsi opinbers starfsfólks
  • Leiðbeiningarskylda stjórnvalda
  • Skráning mála og aðgangur að upplýsingum
Hæfniviðmið

Að kynnast nokkrum af grundvallarreglum íslenskrar stjórnsýslu og þýðingu þeirra fyrir starfið.
Að þekkja til ákvæða um málsmeðferðir og stjórnvaldsákvarðanir auk leiðbeiningarskyldu stjórnvalda.
Að þekkja hvaða kröfur gilda um skráningu mála, upplýsinga og erinda sem berast stjórnvöldum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Umsjón

Valgeir Þór Þorvaldsson sérfræðingur á skrifstofu kjara- og mannauðsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Námsform

Streymi

Tími
  • 2. nóvember 2026 klukkan 12:00-15:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

3 klst

Mat

Mæting

Verð

22.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Þau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum