Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Bætt samskipti með virkri hlustun

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Í hraða nútímas gleymum við oft að hlusta en leggjum ofur áherslu á að komast sjálf að í umræðunum. Hlustun er einn veigamesti þátturinn í samskiptum og tækifærið til að skilja menn og málefni.

Farið er ítarlega yfir þá tækni sem beitt er í virkri hlustun og gerðar æfingar. Með virkri hlustun áttu auðveldar með að setja þig í spor annarra og sá sem hlustað er á finnur fyrir virðingu og áhuga þess sem hlustar.

,,Ég skilaboð“ fela í sér samskiptaform þar sem við tölum út frá sjálfum okkur og segjum hvað okkur finnst í stað þess að dæma þann sem við tölum við eða segja hvað okkur finnst neikvætt í framkomu hans. Þegar við notum ég skilaboð einkennast erfið samskipti af virðingu í stað dómhörku.

 Námskeiðið hentar vel til að efla gæði samskipta, virðingu og skilning milli einstaklinga.

Efnistök
  • Mikilvægi hlustunar, hlustun er lykill að skilningi í hraða nútímans
  • Virk hlustun, tækni og æfingar til að sýna virðingu og hluttekningu
  • „Ég-skilaboð“, samskiptaform sem dregur úr dómhörku og byggir á virðingu
  • Bætt samskipti, leiðir til að efla skilning og gæði mannlegra kynna
Hæfniviðmið

Að geta beitt virkri hlustun.
Að skilja og geta beitt,, ég-skilaboðum“.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Streymi á Zoom.

Samstarfsaðili
Sameyki
Umsjón
Sigríður Hulda Jónsdóttir hjá SHJ ráðgjöf.
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir. - johanna@sameyki.is
Námsform
Streymi
Tími
  • 17. nóvember 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat

Mæting.

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis