Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um hvernig þátttakendur geta virkjað styrkleika sína í ólíkum aðstæðum, tamið sér ný viðbrögð og yfirfært eiginleika sína á milli ólíkra áskorana til að standa uppi sem sterkari aðilar. Rík áhersla er lögð á mikilvægi sjálfsþekkingar og hluttekningar, þar sem rýnt er í hvað býr að baki vandanum með því að setja sig í spor annarra. Þátttakendur kynnast fjölbreyttum leiðum til að halda jafnvægi og vinna með lausnarmiðuðu hugarfari í erfiðum aðstæðum. Markmiðið er að auka færni, sjálfsaga og sjálfsöryggi svo fólk verði flinkara í að tala við alla og taka á málum af yfirvegun.
Einnig verður farið yfir hvernig má standa fast á sínu á kurteislegan hátt, leiða samtöl á rétta braut og setja skýr mörk án þess að missa skilning eða rósemi. Kenndar verða aðferðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og mikilvægi þess að taka ásakanir ekki persónulega. Að lokum er horft á krefjandi samskipti sem uppbyggilega áskorun og tækifæri til að stækka reynslubankann, þroska persónustyrk sinn og læra og styrkjast af hverju aðstæðum.
Að fá innsýn í hegðun sem einkennir krefjandi samskipti.
Að öðlast meira öryggi til að bregðast rétt við í ágengri framkomu.
Vinnustofa á Zoom.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða