Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Námskeiðið er fyrir trúnaðarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í nýju hlutverki. Farið er í stuttu máli yfir uppbyggingu vinnumarkaðarins, hlutverk og þjónustu Sameykis. Fjallað er um ákvæði í lögum um trúnaðarmanninn, ábyrgð og skyldur kjörinna fulltrúa ásamt umfjöllun um jafnréttishugtakið og inngildingu.
Að þekkja félagið sitt vel og vita hvar hægt er að finna upplýsingar um kjara-og réttindamál.
Að vita í hvaða lögum og reglum er fjallað um hlutverk trúnaðarmans og þekkja ákvæði um vernd.
Að vera meðvituð um ábyrgð sína og skyldur sem kjörinn fulltrúi.
Að þekkja til jafnréttishugtaksins og hvað inngilding þýðir.
Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræður. Streymi á Teams.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða