Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Starfsemi Sameykis og túlkun kjarasamninga

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Farið er yfir starfsemi Sameykis og réttindi félagsfólks í sjóðum stéttarfélaganna, svo sem styrktar- og sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofssjóði og vinnudeilusjóði. Þá er farið yfir grundvallarkafla kjarasamnings þar sem fjallað er um vinnutíma og skipulag, vaktavinnu og hvíldartíma, matar- og kaffitíma, orlof, veikindarétt, uppsagnarákvæði og fleira. Einnig er fjallað um launamyndunarkerfi eins og starfsmat og stofnanasamninga.

Efnistök
  • Starfsemi og sjóðir, þekking á rekstri félagsins og réttindum í sjóðum þess
  • Kjarasamningar, innihald, uppbygging og gildi samninga gagnvart ráðningarsamningum
  • Launamyndun, skilningur á launakerfum og hvernig laun einstaklinga eru reiknuð
Hæfniviðmið

Að vera meðvituð um hvernig stéttarfélagið starfar.
Að þekkja sjóði stéttarfélagsins og réttindi félagsfólks í þeim.
Að þekkja innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim.
Að vera meðvituð um gildi kjarasamninga og ráðningarsamninga. 
Að þekkja til helstu launamyndunarkerfa og geta lesið sig í gegnum launamyndun einstaklinga.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Streymi á Teams.

Umsjón
Starfsfólk frá Fjármáladeild, Félagsdeild og Kjaradeild Sameykis.
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir. - johanna@sameyki.is
Námsform
Streymi
Tími
  • 7. október 2026 klukkan 12:45-15:45

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis