Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra.
Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.
Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum.
Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum.
Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið. Netnámskeiðið er 3.5 klst.
ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða