Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Ofbeldi gegn opinberum starfsmönnum - hver er réttarverndin?

Lýsing

Hótanir, áreitni og ofbeldi gegn opinberu starfsfólki hafa farið vaxandi undanfarin ár. Fleiri dæmi eru um að starfsfólk í stjórnsýslunni hafi verið áreitt og hrellt vegna ákvarðana sem það hefur komið að eða vegna þess að skjólstæðingar eru ósáttir við þá þjónustu eða afgreiðslu sem þeir hafa fengið. Jafnframt hefur kvörtunum um áreitni og einelti á vinnustað fjölgað.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu lagalegu skyldur vinnuveitenda í stjórnsýslunni til að tryggja öryggi, heilsu og velferð starfsfólks á vinnustað og velt upp álitamálum að hvaða marki sú skylda taki eða eigi að taka til verndar utan vinnustaðarins. Fjallað verður um hvernig opinberar stofnanir geta brugðist við einstaklingum sem eiga í samskiptum við stofnanir og eftir atvikum takmarkað aðgengi þeirra að þjónustu eða beint samskiptum í ákveðinn farveg. Jafnframt verður vikið að refsivernd opinberra starfsmanna og fyrirbærinu ,,réttarþrjóskuröskun".  Leitast verður við að svara spurningum á borð við:

Hver eru mörkin milli harðrar gagnrýni og áreitni? 
Hvaða breytingar hafa samfélagsmiðlar haft í för með sér? 
Hvenær ber stofnun skylda til að grípa til sérstakra ráðstafana? 
Hvaða lagalegu úrræði hefur stofnun þegar réttindi borgaranna stangast á við réttindi starfsfólks? 
Hvaða ábyrgð ber stofnun þegar málin fara úrskeiðis?  

Efnistök
  • Lagalegar skyldur vinnuveitenda vegna áreitni og ofbeldis
  • Leiðir til að takmarka aðgengi eða stýra samskiptum
  • Jafnvægi milli réttinda borgara og verndar starfsfólks
  • Áhrif samfélagsmiðla og refsivernd opinberra starfsmanna
Hæfniviðmið

Að skilja lagalega ábyrgð vinnuveitenda og kunna að nýta tiltæk úrræði til að tryggja öryggi starfsfólks gegn áreitni og hótunum

Fyrirkomulag

Námskeiðið er í beinu streymi og upptaka verður aðgengileg eftir að því lýkur.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.

Umsjón
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt
Námsform
Streymi
Tími
  • 21. maí 2026 klukkan 09:00-12:30

Lengd
3,5 klst
Mat
Mæting
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem vilja kynna sér helstu lagalegu skyldur vinnuveitenda í stjórnsýslunni til að tryggja öryggi, heilsu og velferð starfsfólks í tengslum við vinnuna