Aftur í námskeið

Að líða vel í vinnunni

Lýsing

Góð líðan í starfi verður ekki til af sjálfu sér en hvað getum við gert til að stuðla að henni?

Í fyrirlestrinum verður fjallað um nokkra mikilvæga þætti sem stuðla að góðri líðan og starfsánægju og hvernig hægt er að standa vörð um sálrænt öryggi á vinnustað.

Skoðað verður hvað einstaklingar geta sjálfir gert til þess að styrkja líðan sína í starfi og hvað stjórnendur þurfa að gera til þess að tryggja að starfsfólk fái notið sín.

Áhersla er lögð á fyrirbyggjandi nálgun ásamt hagnýtum leiðum til þess að byggja upp vellíðan starfsfólks og menningu vinnustaðarins í heild.

Efnistök
  • Öndvegissúlurnar fimm sem leggja grunninn að góðri líðan á vinnustað
  • Hvaða þættir eru mikilvægastir til þess að auka starfsánægju og framlegð
  • Hvað einkennir vinnustaði sem skapa starfsfólki öruggt starfsumhverfi
  • Hvaða áhrif hafa mismunandi stjórnunarstílar á velferð á vinnustöðum
Hæfniviðmið

Að auka þekkingu á þeim þáttum sem hafa mest áhrif á líðan starfsfólks.

Að auka þekkingu vinnustaða til að geta stuðlað að heilbrigðu og uppbyggilegu starfsumhverfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Umsjón
Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi
Námsform
Streymi
Tími
  • 23. september 2026 klukkan 10:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
1 klst
Mat

Mæting

Verð
7.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem vilja eignast fleiri verkfæri til að efla góða líðan og starfsánægju og öðlast betri skilning á áhrifum ólíkra stjórnunarstíla og sálrænu öryggi