Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Copilot í verki – hagnýtar leiðir í daglegu starfi

Lýsing

Hvernig getur þú nýtt Copilot til að spara tíma, einfalda verkefni og finna nýjar leiðir í starfi?

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig Copilot getur nýst við fjölbreytt verkefni, svo sem að svara fyrirspurnum, miðla upplýsingum til hagaðila, skrifa efni fyrir vef, yfirfara gögn og greina álitaefni.

Þátttakendur læra að setja fram skýr fyrirmæli og nýta samhengi, hlutverk, markmið, framsetningu og tón til að fá betri niðurstöður.

Sérstök áhersla er lögð á ábyrga notkun gervigreindar, persónuvernd og trúnað. Farið verður yfir það hvar mörkin liggja, hvað ber að varast og hvaða upplýsingar má setja inn.

Að lokum er skoðað hvernig teymi geta deilt fyrirmælum, vinnuaðferðum og gervigreindarerindrekum (agents) og byggt upp sameiginlegan þekkingarbanka sem nýtist í daglegu starfi.

Námskeiðið byggir á raunhæfum dæmum og stuttum æfingum sem henta bæði byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. Dæmin miðast við bæði ókeypis og greiddan aðgang að Copilot.

Efnistök
  • Hvað getur gervigreind gert fyrir okkur?
  • Öryggi, áreiðanleiki og ábyrgð
  • Góðar skipanir (prompts)
  • Agents í Copilot, hvað þeir eru og hvernig þeir nýtast við endurtekin verkefni
  • Samvinna og samnýting
Hæfniviðmið

Að nýta Copilot á markvissan hátt við fjölbreytt verkefni í daglegu starfi.

Að setja fram skýr og vel uppbyggð fyrirmæli til að fá gagnlegri og nákvæmari niðurstöður.

Að nota Copilot á ábyrgan hátt með hliðsjón af persónuvernd, trúnaði og áreiðanleika upplýsinga.

Að skilja hvernig gervigreindarerindrekar (agents) geta nýst til að einfalda endurtekin verkefni.

Að þekkja leiðir til að deila fyrirmælum, aðferðum og lausnum innan teyma og stuðla þannig að betri samvinnu.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og æfingar

Gott að vita

Fyrri reynslu af Copilot er ekki krafist. Æskilegt er að mæta með eigin tölvu með aðgangi að Copilot (þarf ekki að vera greidd útgáfa).

Umsjón

Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir Lektor og fagstjóri í viðskiptagreind

Námsform

Staðnám

Tími
  • 21. janúar 2027 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur 16. nóvember kl. 10

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Aðeins ætlað starfsfólk sem starfar á skrifstofum hjá Ás styrktarfélagi.