Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Nauðung fyrir starfsfólk sem vinnur með fötluðu fólki

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvenær telst inngrip nauðung og hvernig bregðumst við rétt við?

Þetta námskeið veitir skýra yfirsýn yfir reglur, ábyrgð og örugg vinnubrögð í krefjandi aðstæðum.

Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður þar sem þarf að grípa inn í til að tryggja öryggi. Þá er mikilvægt að þekkja vel mörk nauðungar og þvingunar og vita hvernig á að bregðast við á faglegan og ábyrgan hátt.

Á námskeiðinu er fjallað um hugtökin nauðung og þvingun frá ólíkum sjónarhornum, þar á meðal lagalegu, siðferðilegu og hagnýtu. Þú færð skýran skilning á því hvað telst heimilt og hvað ekki, og hvernig hægt er að forðast aðstæður þar sem beita þarf þvingun.

Einnig er farið yfir leiðir til að draga úr spennu, fyrirbyggja átök og bregðast við ef aðstæður þróast þannig að grípa þarf inn í.

Áhersla er lögð á öryggi allra, virðingu og mannlega nálgun.

Efnistök
  • Hvað felst í hugtökunum nauðung og þvingun
  • Lög og reglur um nauðung í starfi með fötluðu fólki
  • Siðferðileg sjónarmið og ábyrgð í starfi
  • Leiðir til að fyrirbyggja átök og draga úr spennu
  • Viðbrögð við ólögmætum árásum
  • Öruggar leiðir til að verja sig ef þörf krefur
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist skýran skilning á nauðung og þvingun og geti beitt öruggum og lögmætum vinnubrögðum í starfi.
Að efla öryggi, ábyrgð og fagmennsku í krefjandi aðstæðum.

Fyrirkomulag

Umræður og fyrirlestur.  

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Umsjón
Ástríður Erlendsdóttir þroskaþjálfi og sáttamiðlari
Námsform
Staðnám
Tími
  • 14. október 2026 klukkan 13:00-16:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja styrkja eða rifja upp viðbragðs- og öryggisfærni.