Hvernig getum við byggt upp traust, öryggi og jákvæð tengsl í daglegu starfi?
Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem leggur áherslu á mannleg tengsl, umhyggju og virðingu í allri þjónustu.
Á þessu grunnnámskeiði kynnumst við helstu stoðum þjónandi leiðsagnar og hvernig þær geta stutt við jákvæð samskipti, aukin lífsgæði og einstaklingsmiðaða þjónustu. Farið verður yfir hvernig hugmyndafræðin nýtist í daglegu starfi með fólki og hvernig hún tengist mannréttindum, sjálfsákvörðunarrétti og þátttöku í samfélaginu.
Að þekkja helstu grunnstoðir þjónandi leiðsagnar.
Að geta nýtt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar í daglegum samskiptum.
Að átta sig á mikilvægi tengsla, virðingar og öryggis í þjónustu við fólk.
Fyrirlestrur og umræður.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Björn Ingi Árnason, leiðbeinandi í Þjónandi leiðsögn
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3 klst
Mæting og þátttaka
Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á mannlegri og virðingarfyllri nálgun í starfi.