Aftur í námskeið

Brot í starfi og utan þess: Hvernig á að (og má) bregðast við á vinnustað?

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Námskeiðinu er ætlað að vera leiðsögn um völundarhús íslenskra laga og reglna um viðbrögð á vinnustað við ætlaðri refsiverðri háttsemi starfsfólks. Fjallað er um helstu lagalegu skyldur vinnuveitanda þegar frásögn berst um alvarlega og ámælisverða hegðun starfsmanns á borð við áreitni og ofbeldi gagnvart öðru starfsfólki.

Eins verður fjallað um að hvaða marki vinnuveitandi getur brugðist við frásögnum um slíka háttsemi utan vinnu. Í námskeiðinu verður vikið að ólíkri réttarstöðu vinnuveitenda og starfsfólks á almennum og opinberum vinnumarkaði að þessu leyti og jafnframt að hvaða leyti reglur eru sameiginlegar.

Farið verður yfir helstu réttindi starfsfólks með hliðsjón af reglum vinnuréttar og íslenskri löggjöf, bæði um að njóta öryggis á vinnustað gagnvart hegðun annarra og réttlátrar málsmeðferðar ef ásökun beinist að viðkomandi. Leitast verður við að styðja umfjöllunina raunhæfum dæmum og fjallað verður um nýlegar niðurstöður dómstóla að þessu leyti. 

Efnistök
  • Leiðsögn um íslenska löggjöf og vinnurétt
  • Skyldur stjórnenda við ætlaðri refsiverðri háttsemi
  • Ofbeldi, áreitni og ámælisverð hegðun á vinnustað
  • Viðbrögð við atvikum sem eiga sér stað utan vinnutíma
  • Samanburður á almennum og opinberum vinnumarkaði
  • Réttur til öryggis og kröfur um réttláta málsmeðferð
  • Dæmi um refsiverða hegðun og nýlegir dómar greindir
Hæfniviðmið

Að geta stýrt viðbrögðum vinnustaðar við ætlaðri refsiverðri háttsemi.
Að geta tryggt jafnvægi á milli öryggis starfsfólks og réttinda ásakaðra.
Að geta mótað skýra ferla í samræmi við gildandi lög.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Námskeiðið verður í streymi en einnig verður upptaka af námskeiðinu aðgengileg eftir að því lýkur.

Samstarfsaðili
Stofnun stjórnmálafræða og stjórnsýslu hjá HÍ.
Umsjón
Kjartan Bjarni Björgvinsson dómari við Landsrétt
Námsform
Streymi
Tími
  • 17. september 2026 klukkan 09:00-12:30

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
3,5 klst
Mat

Mæting

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Stjórnendur, mannauðsráðgjafar, starfsfólk og aðilar sem koma að ráðgjöf í starfsmannamálum.