Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Copilot fyrir fjármálasérfræðinga

Lýsing

Minni tími í gagnaúrvinnslu og skýrslugerð – meiri tími fyrir greiningu og ákvarðanatöku.

Viltu einfalda dagleg verkefni, spara tíma og nýta upplýsingar betur í fjármálastarfinu?

Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að vinna úr gögnum, taka saman upplýsingar og útbúa skýrslur og kynningar. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi þátttakenda. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna og mikilvægi þess að sannreyna fjárhagsupplýsingar og útreikninga.

Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.

Efnistök
  • Greina og vinna úr gögnum í Excel
  • Draga saman lykilatriði úr fundum, tölvupóstum, fjárhagsskýrslum og öðrum skjölum
  • Útbúa drög að kynningum, stjórnendayfirlitum og minnisblöðum
  • Styðja við fjárhagsáætlanagerð og samanburð á áætlunum og niðurstöðum
  • Einfalda skjala- og skýrslugerð og draga úr endurtekinni vinnu
  • Setja fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá betri niðurstöður frá Copilot
Hæfniviðmið

Að geta nýtt Copilot til að greina og vinna úr fjármálagögnum, meðal annars í Excel.
Að geta tekið saman lykilupplýsingar úr skjölum og gögnum og nýtt þær við skýrslugerð og ákvarðanatöku.
Að geta notað Copilot til að einfalda gerð fjárhagsskýrslna, stjórnendayfirlita og kynninga ásamt því að styðja við fjárhagsáætlanagerð.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá áreiðanlegri og gagnlegri niðurstöður frá Copilot.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er verklegt og sniðið að verkefnum fjármálafólks. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.

Umsjón

Emil Þór Ragnarsson og Hildur Lára Jónsdóttir

Námsform

Staðnám

Tími
  • 20. nóvember 2026 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir fjármálasérfræðinga sem starfa hjá ríkinu

Markhópur

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem sinnir fjármálum, rekstri, greiningum, áætlanagerð og upplýsingagjöf til stjórnenda.