Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Copilot fyrir kennara

Lýsing

Minni tími í undirbúning og skipulag – meiri tími fyrir kennslu og nemendur.

Viltu einfalda undirbúning kennslu, spara tíma og fá nýjar hugmyndir að fjölbreyttum kennsluaðferðum?

Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að skipuleggja kennslu, útbúa námsefni og þróa verkefni sem henta ólíkum þörfum nemenda. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla dagleg verkefni kennara. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna, ábyrga notkun gervigreindar og mikilvægi þess að gæta að persónuvernd og trúnaði þegar unnið er með upplýsingar um nemendur.

Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.

Efnistök
  • Skipuleggja kennslu og útbúa kennsluáætlanir
  • Fá hugmyndir að fjölbreyttum kennsluaðferðum og verkefnum
  • Útbúa drög að námsefni, verkefnablöðum og kynningum
  • Aðlaga námsefni að ólíkum aldri, námsgetu og þörfum nemenda
  • Semja drög að upplýsingapóstum, tilkynningum og öðru samskiptaefni til foreldra og samstarfsfólks
  • Setja fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá betri niðurstöður frá Copilot.
Hæfniviðmið

Að geta nýtt Copilot til að skipuleggja kennslu og útbúa kennsluáætlanir.
Að geta notað Copilot til að þróa fjölbreyttar kennsluaðferðir, verkefni og námsefni sem taka mið af ólíkum þörfum nemenda.
Að geta nýtt Copilot við gerð verkefnablaða, kynninga og samskiptaefnis fyrir nemendur, foreldra og samstarfsfólk.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður og einfalda undirbúning og skipulag kennslu.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er ætlað kennurum við framhaldsskóla og háskóla sem vilja nýta Copilot til að einfalda undirbúning, þróa kennsluefni og nýta gervigreind á markvissan hátt í daglegu starfi. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.

Umsjón

Alexander Jóhannesson og Hildur Lára Jónsdóttir

Námsform

Staðnám

Tími
  • 17. nóvember 2026 klukkan 13:00-15:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir kennara sem starfa hjá ríkinu

Markhópur

Námskeiðið er ætlað kennurum við framhaldsskóla og háskóla sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni, þróa kennsluhætti og skapa meira svigrúm fyrir kennslu og samskipti við nemendur.