Minni tími í undirbúning og skipulag – meiri tími fyrir kennslu og nemendur.
Viltu einfalda undirbúning kennslu, spara tíma og fá nýjar hugmyndir að fjölbreyttum kennsluaðferðum?
Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að skipuleggja kennslu, útbúa námsefni og þróa verkefni sem henta ólíkum þörfum nemenda. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla dagleg verkefni kennara. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna, ábyrga notkun gervigreindar og mikilvægi þess að gæta að persónuvernd og trúnaði þegar unnið er með upplýsingar um nemendur.
Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.
Að geta nýtt Copilot til að skipuleggja kennslu og útbúa kennsluáætlanir.
Að geta notað Copilot til að þróa fjölbreyttar kennsluaðferðir, verkefni og námsefni sem taka mið af ólíkum þörfum nemenda.
Að geta nýtt Copilot við gerð verkefnablaða, kynninga og samskiptaefnis fyrir nemendur, foreldra og samstarfsfólk.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður og einfalda undirbúning og skipulag kennslu.
Námskeiðið er ætlað kennurum við framhaldsskóla og háskóla sem vilja nýta Copilot til að einfalda undirbúning, þróa kennsluefni og nýta gervigreind á markvissan hátt í daglegu starfi. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.
Alexander Jóhannesson og Hildur Lára Jónsdóttir
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
2 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir kennara sem starfa hjá ríkinu
Námskeiðið er ætlað kennurum við framhaldsskóla og háskóla sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni, þróa kennsluhætti og skapa meira svigrúm fyrir kennslu og samskipti við nemendur.