Minni tími í skjalavinnslu og upplýsingaleit – meiri tími fyrir lögfræðilega greiningu og ráðgjöf.
Viltu einfalda dagleg verkefni, spara tíma við yfirferð skjala og nýta upplýsingar á markvissari hátt?
Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að vinna með lögfræðileg skjöl, taka saman upplýsingar og undirbúa drög að textum og minnisblöðum. Áhersla er lögð á hagnýta notkun, nákvæmni og ábyrga meðferð upplýsinga. Sérstök áhersla er lögð á gagnrýna yfirferð niðurstaðna, meðferð trúnaðarupplýsinga og mikilvægi þess að sannreyna lagatilvísanir og aðrar upplýsingar sem Copilot setur fram.
Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.
Að geta nýtt Copilot við gerð og yfirferð lögfræðilegra skjala, minnisblaða, umsagna og annarra formlegra texta.
Að geta notað Copilot til að leita að upplýsingum, draga saman lykilatriði og bera saman umfangsmikil skjöl.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá nákvæmari og gagnlegri niðurstöður sem styðja við lögfræðilega greiningu og ráðgjöf.
Að geta nýtt Copilot á ábyrgan og öruggan hátt, með hliðsjón af trúnaði, persónuvernd og mikilvægi faglegs mats við yfirferð niðurstaðna.
Námskeiðið er verklegt og sniðið að verkefnum lögfræðinga. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.
Ævar Hrafn Ingólfsson og Alexander Jóhannesson
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
2 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir lögfræðinga sem starfa hjá ríkinu
Námskeiðið er ætlað lögfræðingum og öðru starfsfólki sem vinnur með lögfræðileg álitaefni, reglur, samninga og formleg skjöl.