Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Copilot fyrir lögfræðinga

Lýsing

Minni tími í skjalavinnslu og upplýsingaleit – meiri tími fyrir lögfræðilega greiningu og ráðgjöf.

Viltu einfalda dagleg verkefni, spara tíma við yfirferð skjala og nýta upplýsingar á markvissari hátt?

Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að vinna með lögfræðileg skjöl, taka saman upplýsingar og undirbúa drög að textum og minnisblöðum. Áhersla er lögð á hagnýta notkun, nákvæmni og ábyrga meðferð upplýsinga. Sérstök áhersla er lögð á gagnrýna yfirferð niðurstaðna, meðferð trúnaðarupplýsinga og mikilvægi þess að sannreyna lagatilvísanir og aðrar upplýsingar sem Copilot setur fram.

Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.

Efnistök
  • Útbúa og yfirfara drög að lögfræðilegum skjölum
  • Semja drög að minnisblöðum, umsögnum og öðrum formlegum textum
  • Leita að upplýsingum og draga saman lykilatriði úr umfangsmiklum skjölum
  • Bera saman skjöl og greina breytingar, mismun og mikilvæg atriði
  • Setja fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá betri niðurstöður frá Copilot
  • Nýta gervigreind á ábyrgan og öruggan hátt í lögfræðilegri vinnu
Hæfniviðmið

Að geta nýtt Copilot við gerð og yfirferð lögfræðilegra skjala, minnisblaða, umsagna og annarra formlegra texta.
Að geta notað Copilot til að leita að upplýsingum, draga saman lykilatriði og bera saman umfangsmikil skjöl.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá nákvæmari og gagnlegri niðurstöður sem styðja við lögfræðilega greiningu og ráðgjöf.
Að geta nýtt Copilot á ábyrgan og öruggan hátt, með hliðsjón af trúnaði, persónuvernd og mikilvægi faglegs mats við yfirferð niðurstaðna.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er verklegt og sniðið að verkefnum lögfræðinga. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.

Umsjón

Ævar Hrafn Ingólfsson og Alexander Jóhannsson

Námsform

Staðnám

Tími
  • 23. nóvember 2026 klukkan 13:00-15:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir lögfræðinga sem starfa hjá ríkinu

Markhópur

Námskeiðið er ætlað lögfræðingum og öðru starfsfólki sem vinnur með lögfræðileg álitaefni, reglur, samninga og formleg skjöl.