Minni tími í rútínuverkefni – meiri tími fyrir fólkið.
Viltu nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og skapa meira svigrúm fyrir þau verkefni sem skipta mestu máli í mannauðsstarfi?
Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að vinna með upplýsingar, útbúa efni og einfalda verkefni sem tengjast mannauðsmálum. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi þátttakenda.
Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.
Að geta nýtt Copilot til að einfalda og bæta vinnubrögð við dagleg verkefni í mannauðsstarfi.
Að geta notað Copilot við gerð og yfirferð starfslýsinga, samantekt upplýsinga og úrvinnslu gagna.
Að geta nýtt Copilot til að útbúa drög að innri tilkynningum, fræðsluefni og kynningum.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður sem nýtast í eigin starfi.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem sinnir mannauðsmálum, ráðningum, fræðslu og starfsþróun. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.
Hildur Steinþórsdóttir og Jóhann Einar Ísaksson
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
2 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir mannauðssérfræðinga sem starfa hjá ríkinu
Námskeiðið er ætlað ríkisstarfsfólki sem sinnir mannauðsmálum, ráðningum, fræðslu og starfsþróun.