Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Copilot fyrir sérfræðinga (Fullbókað)

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Minni tími í upplýsingaleit og endurtekin verkefni – meiri tími fyrir sérfræðivinnu og úrlausnir.

Viltu einfalda dagleg verkefni, spara tíma og nýta Copilot á markvissari hátt í starfi?

Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að finna og vinna úr upplýsingum, taka saman gögn, undirbúa fundi og útbúa fjölbreytt efni. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla dagleg verkefni sérfræðinga á ólíkum starfssviðum. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna og ábyrga notkun Copilot við meðferð upplýsinga.

Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.

Efnistök
  • Leita að upplýsingum, greina þær og draga fram helstu atriði
  • Taka saman lykilupplýsingar úr fundum, tölvupóstum og skjölum
  • Undirbúa fundi, útbúa aðgerðalista og fylgja verkefnum eftir
  • Útbúa drög að kynningum, minnisblöðum og samskiptaefni
  • Einfalda endurtekin verkefni og bæta skipulag í daglegri vinnu
  • Setja fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá betri niðurstöður frá Copilot.
Hæfniviðmið

Að geta nýtt Copilot til að leita að upplýsingum, greina þær og draga saman lykilatriði úr skjölum, fundum og tölvupóstum.
Að geta notað Copilot til að undirbúa fundi, útbúa aðgerðalista og styðja við skipulag og eftirfylgni verkefna.
Að geta nýtt Copilot við gerð kynninga, minnisblaða og samskiptaefnis ásamt því að einfalda endurtekin verkefni í daglegu starfi.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður og bæta vinnubrögð í sérfræðistörfum.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er ætlað sérfræðingum á öllum sviðum ríkisins sem vinna með upplýsingar, skjöl, fundi og samskipti og vilja nýta Copilot til að einfalda verkefni og vinna á skilvirkari hátt. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.

Umsjón

Emil Þór Ragnarsson og Hildur Lára Jónsdóttir

Námsform

Staðnám

Tími
  • 9. nóvember 2026 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir sérfræðinga sem starfa hjá ríkinu

Markhópur

Námskeiðið er ætlað sérfræðingum á öllum sviðum ríkisins sem vinna með upplýsingar, skjöl, fundi og samskipti og vilja nýta Copilot til að einfalda verkefni og vinna á skilvirkari hátt.