Minni tími í fundi og upplýsingavinnslu – meiri tími fyrir stjórnun og ákvarðanatöku.
Viltu fá betri yfirsýn, einfalda dagleg verkefni og nýta tímann betur í stjórnendastarfinu?
Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að undirbúa fundi, vinna úr upplýsingum, fylgja eftir verkefnum og styðja við ákvarðanatöku. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi stjórnenda. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna og ábyrga notkun Copilot við meðferð upplýsinga og undirbúning ákvarðana.
Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.
Að geta nýtt Copilot til að undirbúa fundi, taka saman helstu niðurstöður og útbúa aðgerðalista til eftirfylgni.
Að geta notað Copilot til að vinna úr upplýsingum, greina lykilatriði og styðja við ákvarðanatöku í stjórnendastarfi.
Að geta nýtt Copilot við gerð kynninga, minnisblaða og samskiptaefnis ásamt því að skipuleggja verkefni og forgangsraða.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður og einfalda dagleg verkefni.
Námskeiðið er verklegt og sniðið að verkefnum stjórnenda á öllum sviðum ríkisins sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og stjórnendastarfið. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.
Skúli Valberg Ólafsson og Jóhann Einar Ísaksson
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
2 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir stjórnendur sem starfa hjá ríkinu
Námskeiðið er ætlað stjórnendum á öllum sviðum ríkisins sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og styðja við stjórnendastarfið.