Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Copilot fyrir stjórnendur

Lýsing

Minni tími í fundi og upplýsingavinnslu – meiri tími fyrir stjórnun og ákvarðanatöku.

Viltu fá betri yfirsýn, einfalda dagleg verkefni og nýta tímann betur í stjórnendastarfinu?

Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig Copilot getur aðstoðað þig við að undirbúa fundi, vinna úr upplýsingum, fylgja eftir verkefnum og styðja við ákvarðanatöku. Áhersla er lögð á hagnýta notkun og dæmi sem endurspegla raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi stjórnenda. Einnig verður lögð áhersla á gagnrýna yfirferð niðurstaðna og ábyrga notkun Copilot við meðferð upplýsinga og undirbúning ákvarðana.

Þátttakendur eru hvattir til að horfa á grunnnámskeiðið um Microsoft 365 Copilot, sem samanstendur af sjö stuttum myndböndum, áður en þeir mæta á þetta staðbundna, hlutverkamiðaða námskeið. Myndböndin má finna í fræðslukerfum stærri stofnana og hjá Fjársýsluskólanum.

Efnistök
  • Taka saman helstu niðurstöður funda og útbúa aðgerðalista
  • Undirbúa fundi, kynningar og minnisblöð
  • Draga saman og greina lykilupplýsingar úr skjölum og gögnum
  • Útbúa drög að tilkynningum, upplýsingapóstum og öðru samskiptaefni
  • Skipuleggja verkefni, forgangsraða og nýta tímann betur
  • Setja fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá betri niðurstöður frá Copilot
Hæfniviðmið

Að geta nýtt Copilot til að undirbúa fundi, taka saman helstu niðurstöður og útbúa aðgerðalista til eftirfylgni.
Að geta notað Copilot til að vinna úr upplýsingum, greina lykilatriði og styðja við ákvarðanatöku í stjórnendastarfi.
Að geta nýtt Copilot við gerð kynninga, minnisblaða og samskiptaefnis ásamt því að skipuleggja verkefni og forgangsraða.
Að geta sett fram skýr og markviss fyrirmæli til að fá gagnlegri niðurstöður og einfalda dagleg verkefni.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er verklegt og sniðið að verkefnum stjórnenda á öllum sviðum ríkisins sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og stjórnendastarfið. Þátttakendur er hvattir til að koma með tölvurnar sínar til að vera innskráðir inn á sitt vinnusvæði. Ef lágmarksþátttöku er ekki náð fellur námskeiðið niður.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er með Microsoft 365 Copilot-leyfi, þ.e. Copilot sem er samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu og nýtist meðal annars í Word, Excel, PowerPoint og fleiri forritum. Aðgangur að Copilot Chat einum og sér er því ekki það leyfi sem átt er við hér.

Umsjón

Skúli Valberg Ólafsson og Alexander Jóhannesson

Námsform

Staðnám

Tími
  • 18. nóvember 2026 klukkan 13:00-15:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir stjórnendur sem starfa hjá ríkinu

Markhópur

Námskeiðið er ætlað stjórnendum á öllum sviðum ríkisins sem vilja nýta Copilot til að einfalda dagleg verkefni og styðja við stjórnendastarfið.