Aftur í námskeið

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Lög og reglur

Lýsing

Á námskeiðinu er farið yfir helstu lagaskyldur og skipulag sem snerta atvinnubílstjóra. Fjallað er um aksturs- og hvíldartíma, leyfisveitingar og þær reglur sem gilda um flutninga á farþegum og farmi í atvinnuskyni. Einnig er farið yfir hlutverk þeirra stofnana sem stýra flutningamálum og hvaða viðurlög liggja við umferðarbrotum. Markmiðið er að tryggja að bílstjórar starfi í samræmi við lög og þekki réttindi sín og skyldur í starfi.

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök
  • Lög og reglur sem gilda um starf atvinnubílstjóra
  • Vinnufyrirkomulag, aksturs- og hvíldartími
  • Leyfi og flutningar, bæði vegna farþega- og farmflutninga
    Stjórnsýsla og eftirlit, hlutverk opinberra stofnana
  • Réttindi og skyldur atvinnu bílstjóra samkvæmt íslenskum lögum
Hæfniviðmið

Að þekkja helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki.
Að gera sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.

Fyrirkomulag

Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.

Umsjón
Ökuland
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
7 klst
Mat
Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D