ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Á námskeiðinu er farið yfir helstu lagaskyldur og skipulag sem snerta atvinnubílstjóra. Fjallað er um aksturs- og hvíldartíma, leyfisveitingar og þær reglur sem gilda um flutninga á farþegum og farmi í atvinnuskyni. Einnig er farið yfir hlutverk þeirra stofnana sem stýra flutningamálum og hvaða viðurlög liggja við umferðarbrotum. Markmiðið er að tryggja að bílstjórar starfi í samræmi við lög og þekki réttindi sín og skyldur í starfi.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Lög og reglur sem gilda um starf atvinnubílstjóra
Vinnufyrirkomulag, aksturs- og hvíldartími
Leyfi og flutningar, bæði vegna farþega- og farmflutninga
Stjórnsýsla og eftirlit, hlutverk opinberra stofnana
Réttindi og skyldur atvinnu bílstjóra samkvæmt íslenskum lögum
Að þekkja helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki
Að gera sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.