Markmið námsins er að búa hópbifreiðastjóra undir kröfur starfsins með áherslu á faglega aksturstækni og ríka ábyrgð gagnvart farþegum. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér mjúkan akstur sem tryggir þægindi og öryggi fólks flutningi, auk þess að þekkja ítarlega þau ákvæði laga og reglugerða sem gilda um farþegaflutninga og sértækan búnað hópbifreiða.
Bílstjórar skulu átta sig á lykilhlutverki sínu sem þjónustuaðilar, þar sem fagleg framkoma og samskiptahæfni eru undirstaða góðrar upplifunar farþega. Jafnframt er leitast við að efla vitund um náttúruvernd og ferðamennsku, þannig að bílstjórar starfi í sátt við umhverfið og sýni ábyrga hegðun á viðkvæmum ferðamannastöðum.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða og farþegaflutningum.
Að þekkja ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega.
Að þekkja þjónustuhlutverk bílstjóra.
Að þekkja til náttúruverndar og ferðamennsku.
Að þekkja ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.
Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða