Aftur í námskeið

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Öryggi - Vöruflutningar

Lýsing

Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að ganga frá farmi á öruggan hátt og kunni að nota viðeigandi festibúnað fyrir mismunandi tegundir farms. Markmiðið er að tryggja að hleðsla raski ekki jafnvægi ökutækis og valdi ekki hættu í umferðinni. Jafnframt er farið yfir reglur um notkun farm- og fylgiskjala, hvort sem um er að ræða flutninga innanlands eða á milli landa, svo bílstjórar séu færir um að fylgja opinberum kröfum um skráningu og flutningsskilmála.

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök
  • Öruggur frágangur farms
  • Stöðugleiki og umferðaröryggi
  • Farm- og fylgiskjöl
  • Opinberar kröfur
Hæfniviðmið

Að þekkja hvernig ganga á frá farmi af öryggi og festa mismunandi tegundir farms.
Að þekkja reglur um notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.

Fyrirkomulag

Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.

Umsjón
Ökuland
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
7 klst
Mat
Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D