Aftur í námskeið

Isavia - Endurmenntun atvinnubílstjóra - Skyndihjálp

Lýsing

ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi

Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök
  • Undirstöðuatriði skyndihjálpar
  • Fjögur skref skyndihjálpar
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Vettvangsstjórnun
Hæfniviðmið

Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum

Fyrirkomulag

Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið.

Gott að vita

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda 
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum

Umsjón
Ökuland
Námsform
Staðnám
Tími
  • 20. apríl 2026 klukkan 17:00-20:30

Lengd
3,5 klst
Mat
Að ljúka námskeiði
Staðsetning
Ökuland Austurvegi 6, 800 Selfossi
Verð
Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
20.04.2026Skyndihjálp17:00-20:30Ökuland