Á námskeiðinu er farið yfir hugmyndafræði vistaksturs og hvernig bílstjórar geta lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun með réttri tækni. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér aksturslag sem hámarkar öryggi þeirra sjálfra og annarra vegfarenda, þar sem vistvæn og örugg nálgun fara saman við daglegan akstur.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja hugmyndafræði vistaksturs.
Að þekkja með hvaða hætti hægt er að lágmarka eldsneytiseyðslu og umhverfismengun.
Að þekkja hvernig hægt er að hámarka öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi.
Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða