Aftur í námskeið

Fagnámskeið í félags- og heilbrigðisþjónustu dagnám

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Í náminu eykur þú færni þína og þekkingu á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga þinna til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Lögð er áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.

Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er 210 klukkustundir.

Nánar um námið hjá Fræðslunetinu- símenntun á Suðurlandi

Efnistök
  • Aukinn skilningur á starfsemi í félags- og heilbrigðisþjónustu
  • Að vinna að lausnum og undir álagi
  • Fjölmenningarfærni og frumkvæði
  • Umönnun og smitvarnir
  • Iðja og iðjuþjálfun
  • Gæðavitund og vellíðan
Hæfniviðmið
Að auka færni og þekkingu þátttekenda á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag

Kennsla fer fram í vefnámi á Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 13:00-16:30. Staðlotur verða einu sinni í mánuði í húsnæði Fræðslunetsins að Tryggvagötu 13, 800 Selfossi. 

Námið fer fram á íslensku en boðið er upp á stoðtíma eftir hádegi á fimmtudögum í samráði við kennara, þeir sem vilja bæta sig í íslenskum orðum tengdum umönnunarstörfum er boðið uppá aukatíma í íslensku fyrstu 5 fimmtudagana kl.13-17.

Nánari upplýsingar um námið veita Björk, bjork@fraedslunet.is og Sandra, sandra@fraedslunet.is.

Gott að vita

Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Fræðslunetinu

Samstarfsaðili
Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi
Umsjón
Ýmsir sérfræðingar
Námsform
Blandað
Tími
  • 9. september 2026 klukkan 13:00

Námi lýkur 16. desember 2026. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
210 klst
Mat
Námsmat er byggt á verkefnavinnu og þátttöku. Engin próf
Staðsetning
Fræðslunetið- símenntun á Suðurlandi Tryggvagata 13, 800 Selfoss
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið er ætlað þeim sem vinna eða vilja vinna í félags- og heilbrigðisþjónustu og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi