Aftur í námskeið

Félagsliðagátt-Fræðslunetið

Skráning á þetta námskeið opnar þann 6. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Starfar þú við félags- eða heilbrigðisþjónustu?

Í Félagsliðagátt getur þú bætt við þig þekkingu sem nýtist strax í starfi. Námið sameinar fræði og verklega nálgun á aðgengilegan hátt, og þú byggir jafnt og þétt upp fagmennsku, öryggi og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Námið er skipulagt þannig að þú getur auðveldlega samræmt það vinnu og daglegu lífi.

Efnistök
  • Fagleg og virðingarrík samskipti í starfi
  • Mikilvægi umhyggju og virðingar gagnvart ólíkum aðstæðum einstaklinga
  • Öldrunarferlið og þær breytingar sem fylgja hækkandi aldri
  • Uppbygging og hlutverk félagslegrar þjónustu
Hæfniviðmið

Að efla hæfni sína í faglegum og virðingarríkum samskiptum í starfi.

Að dýpka skilning sinn á ólíkum aðstæðum fólks og mikilvægi umhyggju og virðingar.

Að auka þekkingu sína á öldrunarferlinu og þeim breytingum sem fylgja hækkandi aldri.

Að styrkja skilning sinn á uppbyggingu og hlutverki félagslegrar þjónustu.

Fyrirkomulag

Þú hlustar á fyrirlestra heima og tekur svo þátt í verkefnatímum einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 17:15–20:15. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams. Tekinn er einn áfangi í einu sem stendur yfir í 3-5 vikur. 

Í félagsliðagátt lýkur þú fjórum önnum af sex í námi félagsliða en til að fá starfsréttindi þarftu að klára síðustu tvær annirnar frá framhaldsskóla.

Gott að vita

Til að geta sótt um þarft þú að vera 22 ára eða eldri, að hafa unnið að lágmarki eitt ár í fullu starfi í umönnunarstörfum og að hafa lokið um 190 klst. af starfstengdum námskeiðum.

Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér í námið og við komum skráningunni áfram til Fræðslunetsins þar sem námið er kennt. Aðrir verða að skrá sig hjá Fræðslunetinu,

Samstarfsaðili
Fræðslunetið Suðurlandi
Umsjón
Ýmsir sérfræðingar
Námsform
Blandað
Tími
  • 17. ágúst 2026 klukkan 17:15

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
1720 klst
Staðsetning
Fræðslunetið- símenntun á Suðurlandi Tryggvagata 13, 800 Selfoss
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll þau sem starfa við félags- og heilbrigðisgreinar og vilja styrkja sig og efla fagþekkingu sína